-
Posted on July 12, 2011 via LIFE with 582 notes
Source: life
-
Þegar pabbi fór að deita Freddie Mercury














There needs to be more of this in the world
Frank is my favourite.
Beautiful.
(via thelmiadetrix)
-
Studies 1, reblololo
Posted on January 12, 2011 via reblololo.tumblr with 2,664 notes
Source: reblololo
-
Myndir sem ég hef horft á
Nýlega. Ég hef horft á fleiri myndir en þetta, samtals, þótt ótrúlegt megi virðast. Dæmdar í nautasteikum á skalanum 1 til 5. Ekkert endilega allt glænýjar myndir.
- Inception: Ofmetnara en vampíra úr súkkulaði með tumblr-síðu (fuckyeahchocolatevampires). Gæti skrifað margar síður um hvers vegna, en nenni því ekki. Tvær nautasteikur í mesta lagi, þar af sú seinni seig.
- The Social Network: Var að fíla hana. Tölvunördaskapur gerður vel, með velheppnuðu drama. Hefði mátt vera enn nördalegri á kostnað dramans, að ósekju. Fjórar nautasteikur og meðlæti. Hvítlauksristaðir sveppir, jafnvel.
- Shattered Glass: Sönn saga af blaðamanni sem skáldaði fréttir. Gott efni, sem er ekkert sérlega vel unnið úr. Frekar leim svona í heildina, en allt í lagi að horfa á ef það sem hefur að velja úr er annað hvort þetta eða Inception. Tvær nautasteikur og klípa af kryddsmjöri.
- The Ghost Writer: Sko, mig langaði til að fíla hana. En niðurstaðan er meira svona meh. Ágætt plott, þannig, þó ég hafi séð í gegnum það fyrr en ætlast var til (ÉG ER SOV KLÁR). Þrjár nautasteikur, sú þriðja reyndar mestmegnis fita. En hey, sumir fíla fitu.
- There Will Be Blood: Jájá. Gott stöff. Ekkert út á hana að setja í raun. Solid, eins og unga fólkið segir í dag (árið er 1995 hjá mér). Fjórar nautasteikur.
- Fantastic Mr. Fox: Öðruvísi barna-/brúðu-/eitthvaðmynd. Fylgir reyndar sögu Roald Dahl ekkert sérlega vel, ef ég man söguna rétt (en það þarf langt því frá að vera að ég geri það) - en Dahl-andinn er fullkomlega til staðar. Sneddí, skemmtilegt. Þrjár nautasteikur, með rauðvínssósu, kartöflum og öllu. Nóg til að verða saddur.
- Ghost World: Hvers vegna er þessi mynd einhver költklassík (hjá einhverjum, allavega)? Leiðindi, mestmegnis. Persónur sem fara í taugarnar á mér. Tvær nautasteikur, en þegar þú bítur í þá seinni tekurðu eftir að hún er í raun dulbúið tófú.
Ég nenni ekki að finna linka á IMDB. Þið getið flett þessu upp sjálf ef þið hafið áhuga.
-
Mótsagnir í biflíunni.
-
(via vonbrigdi)
Posted on November 7, 2010 via Midtown Saves with 411 notes
Source: stags-and-lions
-
TAKTÍK helgarblað: Erum við svona fá og vitlaus?
Og þegar ég segi „við“ á ég auðvitað í raun við ykkur. Og svarið er já. Við hér á Taktík erum kannski fá, en vitlaus erum við ekki. Við höfum komið auga á gapandi gloppu í fjölmiðlamarkaði Íslendinga. Það er nefnilega svo, að þegar nálgast má upplýsingar og skoðanir hvers einasta manns auðveldlega…
Posted on November 2, 2010 via TAKTÍK helgarblað with 4 notes
Source: taktik
-
Hómópatinn bloggar
-




